5.2.2010 09:21:00 Kirkjuskólinn alla laugardaga kl 11
Kirkjuskólinn verður á sínum stað kl 11 á laugardaginn 6. feb. í Safnaðarheimilinu. Saga dagsins er frásögnin af því þegar Jesús stillti storminn eins og sjá má í kynningarmyndbandinu. Það verður sungið og hlustað á söguna og sungið svolítið meira og ekki má gleyma fjársjóðskistunni.
Í lok samverunnar er boðið upp á djús/kaffi og eitthvað að maula og börnin fá biblíusögu dagsins. Þau börn sem ekki hafa komið áður fá fulla tösku af biblíusögum og svo fá börnin að teikna og lita inni í föndurherbergi.
Í kirkjuskólanum býðst ómetanleg stund með börnunum, minning sem þau geyma og taka með sér inn í lífið.